HeimVörurÞjónustuverFréttastofanull
Speedlight SB-900  nýtt

Ég vil :
Finna söluaðila Nikon Fá vöruþjónustu
 

i-TTL flass fyrir fagmenn, samhæft við Nikon spegilmyndavélar af FX- og DX-sniði og Nikon ljósblöndunarkerfið. Þetta öfluga flass býður ljósmyndurum upp á ótrúlega fjölbreytta möguleika í myndatökum. Þrjár gerðir lýsingar - miðjusækin, jöfn og venjuleg - tryggja að þú hefur fullkomna stjórn á drægi flassins og sjálfvirkt aðdráttarsvið nær yfir 17-200mm á aðeins 1,2 sekúndum. Aðrir háþróaðir eiginleikar eru mögnunarrafrás sem stuðlar að stuttum endurhleðslutíma með fjórum AA-rafhlöðum og innbyggt hitavarnarkerfi sem varar við ofhitnun. SB-900 getur skynjað sjálfkrafa ef notaðar eru flúrljósa- eða ljósaperusíur, sent upplýsingar til hvítjöfnunarstillingar myndavélarinnar og fastbúnaður hennar getur uppfærst í gegnum myndavélarhúsið.

     
     

     
    Lykileiginleikar
     
    • i-TTL (intelligent TTL) flass fyrir fagmenn, samhæft við Nikon spegilmyndavélar af FX- og DX-sniði.
    • Samhæft við Nikon ljósblöndunarkerfið.
    • Miðjusækin, jöfn og venjuleg lýsing: Miðjusækin stilling beinir lýsingunni í miðju rammans og er gagnleg þegar notuð er aðdráttarlinsa. Jöfn stilling dreifir lýsingunni jafnt yfir rammann og er gagnleg þegar verið er að taka hópmyndir. Venjuleg stilling býður upp á staðlað jafnvægi á milli afl- og ljósdreifingar.
    • 17-200mm sjálfvirkt aðdráttarsvið: á aðeins 1,2 sekúndum. 14mm aðdráttarsvið þegar notaður er innbyggður ljósdreifir eða hulsa til að mýkja flassljós.
    • Sjálfvirk greining flögusniðs: ber sjálfkrafa kennsl á myndavélar af FX- eða DX-sniði.
    • Stuttur endurhleðslutími; aðeins 2,2 sekúndur með fjórum AA-rafhlöðum.
    • Þægilegt viðmót með stórum LCD-skjá og 3 alhliða rofum sem hægt er að stilla.
    • AF-aðstoðarljós: samhæft Multi-CAM3500 FX / DX AF-flögum.
    • Endurkastsmöguleikar: snýst lárétt um 180º til hægri og vinstri, hallar upp um 90º og niður um 11º.
    • Hitavarnarkerfi: hægt að stilla þannig að það vari við ofhitnun þegar notkun er mikil.
    • Sjálfvirk síuskynjun: Flassið stillir sjálfkrafa hvítjöfnun myndavélarinnar þegar notuð er flúrljósa- eða ljósaperusía.
    • Fastbúnaður er uppfæranlegur í gegnum geymslumiðil myndavélarinnar.
     
    Nikon Iceland
    Hafa sambandVeftréStefna um gagnaleyndNotkunarskilmálar
    Copyright © 2008 Nikon Europe BV