HeimVörurÞjónustuverFréttastofanull
D700  nýtt

Ég vil :
Finna söluaðila Nikon Fá vöruþjónustu
D700
 

D700 myndavélin er viðbót við línu Nikon af spegilmyndavélum með FX-sniði, þar sem byltingarkennd tækni og afköst koma saman í smávöxnu húsi. 12,1 megapixla CMOS flagan er ofurnæm og býður upp á ljósnæmissvið frá ISO 200 til 6400 (stækkanlegt) og er með sjálfhreinsandi einingu til að draga úr ryki. Með EXPEED myndvinnslubúnaði vélarinnar er hægt að ná myndum með frábærri upplausn og tónablæbrigðum á allt að 5 römmum á sekúndu (8 rammar á sekúndu með valfrjálsum MB-D10 rafhlöðubúnaði og EN-EL4a rafhlöðu). Háþróuð umhverfisstilling hennar stuðlar að framúrskarandi lýsingu og 51 punkta AF-kerfi Nikon býður upp á framúrskarandi nákvæmni í eltifókus, jafnvel þegar birta er af skornum skammti. Myndstýringar sem hægt er að velja auðvelda myndvinnslu í vélinni sjálfri, sem sparar tíma í eftirvinnslu, og 3 tommu LCD-skjárinn er með hárri upplausn og styður tvö Live View-forskoðunarsnið auk HDMI-úttaks fyrir myndefni. D700 vélin er DSLR spegilmyndavél með sterkbyggt hús úr magnesíumblöndu sem varið er fyrir umhverfisáhrifum og er með fullkomnu jafnvægi sem getur tekist á við óvæntar kringumstæður, hvar sem þig ber niður í myndatöku.

 
 

 
Lykileiginleikar
 
  • 12,1 megapixla FX (allur ramminn) CMOS flaga með háu suðhlutfalli, breiðu styrkleikasviði og innbyggðum hreinsibúnaði fyrir flögu sem dregur úr ryki eins og kostur er.
  • ISO 200 – 6400: stækkanlegt upp í ISO 25600 (jafngildi) og niður í ISO 100 (jafngildi).
  • 5 rammar á sek. í raðmyndatöku (8 rammar á sek. með valfrjálsri MB-D10 rafhlöðueiningu með litíum-hleðslurafhlöðu EN-EL4a eða 8 AA rafhlöðum).
  • EXPEED myndvinnslubúnaður with 14 bita hliðrænni/stafrænni umbreytingu og 16 bita myndvinnslu sem gefur frábæra upplausn og tónablæbrigði.
  • Háþróuð umhverfisstilling sameinar ljósmælingu vélarinnar og AF-skynjara til að fá nákvæma lýsingu og skarpar myndir.
  • Multi-CAM3500DX 51 punkta AF-kerfi. Hægt að velja sjálfstætt eða stilla á 9 punkta, 21 punkt og 51 punkta.
  • Myndstýringar auðvelda myndvinnslu í myndavélinni sjálfri með því að gera kleift að velja forstillingar sérsniða á myndbreytum eins og skerpu, birtuskilum, birtu, blæ og litamettun í ýmsum litasniðum.
  • 920.000 punkta 3 tommu VGA LCD skjár með 170 gráðu gleiðhorni.
  • Live View-forskoðun með sjálfvirkum fókus auðveldar myndbyggingu með hjálp LCD-skjásins. Tvö snið eru studd: Myndavél haldið eða á þrífæti.
  • DX skurðarsnið er hægt að gera sjálfkrafa virkt þegar linsa með DX-sniði er fest á myndavélina.
  • Hröð svörun: u.þ.b. 40 ms töf á opnun lokara.
  • Með virkri D-lýsingu er hægt að ná frábærum myndum með miklum birtuskilum með því að nota sjálfkrafa tónauppbót þegar myndin er tekin.
  • HDMI viðmót fyrir flutning myndefnis leyfir tengingu við háskerpu myndkerfi.
  • Þægileg hönnun með bættri staðsetningu hnappa sem stjórna má hratt og þægilega.
  • Endingargott hús úr magnesíumblöndu þolir bæði vatn og ryk.
  • Stuðningur við þráðlaust net og Ethernet með valfrjálsum WT-4 þráðlausum sendi.
 
 
Tæknilýsingar
 
 
 

Vinsamlegast smelltu hér til að sjá hvaða aukabúnaður fylgir og/eða er hægt að fá með þessari vöru.

 
 
 
Nikon Iceland
Hafa sambandVeftréStefna um gagnaleyndNotkunarskilmálar
Copyright © 2008 Nikon Europe BV