Nýttu ljósmyndahæfileika þína til fullnustu með næstu kynslóð hágæða myndvinnsluhugbúnaðar Nikon’. Nikon Capture NX 2 notar hina einstöku U PointTM-tækni Nikon’ og inniheldur fjölda öflugra verkfæra og fjögur vinnusvæði sem hægt er að sérsníða að fullu, vista og skipta á milli til að skapa hraðvirkt og skilvirkt vinnuflæði. Capture NX2 er einfalt og notandavænt og veitir þér frelsi til að einbeita þér að því að vinna með litblæ og liti og þar með leggja áherslu á og draga fram áhugaverða þætti við framköllun. Hægt er að nota Capture NX2 með myndum á JPEG- og TIFF-sniði frá hvaða upprunatæki sem er og hugbúnaðurinn er ákjósanlegur fyrir vinnu með Nikon NEF-skrár.

Capture NX2, ótakmörkuð heildarútgáfa fylgir með í kassanum ásamt leiðbeiningum á prenti.

Capture NX2, ótakmörkuð uppfærsluútgáfa fylgir með í kassanum ásamt leiðbeiningum á prenti. Fyrri útgáfa Capture NX þarf að vera til staðar.