Stakur hugbúnaður þar sem hægt er að fjarstýra flestum stillingum stafrænna spegilmyndavéla frá Nikon úr tölvu.
Hægt er að fjarstýra flestum stillingum stafrænna spegilmyndavéla frá Nikon úr tölvu, þar á meðal lýsingarstillingu, lokarahraða og ljósopi.
Hægt að nota í gegnum staðarnet eða þráðlaust staðarnet og þráðlausan sendi.
Myndir fluttar beint úr myndavél yfir á tölvu og notkun vinnuflæða til að stjórna öllum aðgerðum, allt frá myndatöku til vistun mynda.
Bætt skoðunarforrit gerir notendum kleift að birta smámyndir af myndum sem vistaðar eru á tölvunni.
Hægt er að staðfesta eða eyða myndum í biðminni myndavélar með því að nota smámynda- eða forskoðunarskjáinn á tölvu fyrir flutning.
Styður LiveView-stillingar (fyrir þrífót og þar sem haldið er á myndavélinni), þegar myndflaga myndavélarinnar er notuð til að fá rauntíma forskoðun í gegnum hlutglerið. Vegna stuðnings fyrir LiveView er hægt að stilla fókuspunktinn og/eða opnun lokara samtímis og staðfesta myndina á tölvuskjá. Með þrífótarsniði er hægt að fjarstýra vali á fókuspunkti fyrir sjálfvirka fókusinn.
Styður myndstýringakerfið þar sem hægt er að velja og stilla færibreytur mynda á tölvu, og stofna sérsniðnar kúrfur (uppbót á litblæ) sem hægt er að vista yfir á myndavélina.