HeimVörurÞjónustuverFréttastofanull
Ég vil :
Finna söluaðila Nikon Fá vöruþjónustu
 Camera Control Pro 2 - Full version - Retail box
 
Camera Control Pro 2 - Full version - Retail box

Hugbúnaðurinn gerir notendum kleift að fjarstýra stillingum á flestum stafrænum spegilmyndavélum frá Nikon. Hægt er að tengja myndavélina við tölvuna með USB-snúru, eða í gegnum staðarnet eða þráðlaust staðarnet og þráðlausan sendi. Hugbúnaðurinn styður ítarlega möguleika myndavélarinnar, þar á mepal LiveView, myndstýringakerfið og skoðunarforritið, en með þessum forritum er hægt að forskoða og velja myndir áður en þær eru fluttar yfir á tölvu. Hugbúnaðurinn styður einnig vinnuflæði úr myndvinnslu- og vafrahugbúnaðinum frá Nikon.

 
 
 Lykileiginleikar

Hægt er að fjarstýra flestum stillingum stafrænna spegilmyndavéla frá Nikon úr tölvu, þar á meðal lýsingarstillingu, lokarahraða og ljósopi.
Hægt að nota í gegnum staðarnet eða þráðlaust staðarnet og þráðlausan sendi.
Myndir fluttar beint úr myndavél yfir á tölvu og notkun vinnuflæða til að stjórna öllum aðgerðum, allt frá myndatöku til vistun mynda.
Bætt skoðunarforrit gerir notendum kleift að birta smámyndir af myndum sem vistaðar eru á tölvunni.
Hægt er að staðfesta eða eyða myndum í biðminni myndavélar með því að nota smámynda- eða forskoðunarskjáinn á tölvu fyrir flutning.
Styður LiveView-stillingar (fyrir þrífót og þar sem haldið er á myndavélinni), þegar myndflaga myndavélarinnar er notuð til að fá rauntíma forskoðun í gegnum hlutglerið. Vegna stuðnings fyrir LiveView er hægt að stilla fókuspunktinn og/eða opnun lokara samtímis og staðfesta myndina á tölvuskjá. Með þrífótarsniði er hægt að fjarstýra vali á fókuspunkti fyrir sjálfvirka fókusinn.
Styður myndstýringakerfið þar sem hægt er að velja og stilla færibreytur mynda á tölvu, og stofna sérsniðnar kúrfur (uppbót á litblæ) sem hægt er að vista yfir á myndavélina.

 
 Tengdar vörur
 
Nikon Iceland
Hafa sambandVeftréStefna um gagnaleyndNotkunarskilmálar
Copyright © 2008 Nikon Europe BV